Vefsíða Borgarbókasafns

Kíktu á bókasafnið


Kíktu á bókasafnið from Borgarbókasafn Reykjavíkur on Vimeo.


Er eitthvað fyrir þig á bókasafninu? Hvernig væri að kíkja þangað?
Allir eru velkomnir á Borgarbókasafn alltaf. Þar er hægt að glugga í bækur og blöð, nota tölvur, hitta fólk, taka þátt í viðburðum, skoða sýningar, fá sér kaffi og hafa það notalegt. Viljir þú fá eitthvað að láni er nauðsynlegt að eiga bókasafnsskírteini, en þau eru frí fyrir börn að 18 ára aldri og einnig fyrir öryrkja og eldri borgara. Aðrir borga árgjald samkvæmt gjaldskrá.

Borgarbókasafn er um alla borg. Söfnin eru sex, bókabíllinn Höfðingi kemur á um 40 staði um borgina og sögubíllinn Æringi heimsækir leikskóla og frístundaheimili.

Á safninu er mikið úrval bóka á íslensku og öðrum tungumálum, skáldrit og fræðibækur. Einnig bíómyndir og fræðslumyndir. Þá er mikið úrval af alls konar tónlist s.s. popp, rokk, klassík, hiphop, óperur og margt fleira. Áhugamenn um myndasögur ættu að rekast á eitthvað við sitt hæfi því myndasögudeildir safnsins stækka ört og þar er t.d. að finna Manga, Tinna og Superman.

Aðangur að tölvum og netinu er á öllum söfnum og ef þú átt tölvu geturðu komið með hana og nýtt þér þráðlausa netið sem stendur öllum til boða.

 Í öllum söfnunum eru barnadeildir þar sem hægt er að lesa, leika, teikna, púsla og hafa það skemmtilegt. Hægt er að skoða og fá lánaðar bækur á mörgum tungumálum, tímarit, bíómyndir og tónlist. Einnig er mikið um viðburði fyrir börn, t.d. er alltaf dagskrá ætluð þeim á sunnudögum yfir vetrartímann. Fjölskyldumorgnar eru haldnir vikulega og eru þeir blanda af skemmtun, fróðleik og notalegri samveru.

Á safninu er öflugt fjölmenningarlegt starf fyrir alla sem hafa áhuga. Til dæmis má nefna Söguhring kvenna, heimanámsaðstoð fyrir börn og ungt fólk, sögustundir á erlendum tungumálum og bókmenntagöngur á ensku.

Borgarbókasafn veitir því margs konar þjónustu og er starfsfólk safnsins alltaf tilbúið að aðstoða og upplýsa safngesti. Bókasafnið býður upp á fjölbreytta viðburði og uppákomur allt árið um kring. Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir. Safnið er ávallt opið fyrir nýjum hugmyndum og samstarfi. Mundu eftir heimasíðu okkar og vertu velkomin/n á bókasafnið!


Til baka



Senda Senda Prenta Prenta Senda á Facebook


Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�