Magnað myrkur á Vetrarhátíð
Vetrarhátíð í Reykjavík verður haldin dagana 9.-12 febrúar eða frá fimmtudegi til sunnudags. Þema ársins er Magnað Myrkur og speglast það í fjölmörgum viðburðum hátíðarinnar. Kynnið ykkur heildardagskrá Vetrarhátíðar!
Á Borgarbókasafni er mikið um að vera og ber þar hæst hið árlega Ljóðaslamm en viðfangsefni þess er að þessu sinni MYRKUR.
Björg Eiríksdóttir: Innsæi
Björg Eiríksdóttir myndlistarmaður sýnir brot úr þremur sýningum þar sem hún eltir innsæið. Í verkunum er tekist á við tímahugtakið, sjálfsskoðun, hringiðu, munstur, mat og óbærilegan léttleika. Björg sýnir málverk, vídeó, textíl og svífandi skúlptúr. Artótek Borgarbókasafns. Sýningin stendur til 11. mars.
Föstudagur 10. febrúar - Safnanótt
Kl. 17-20
Vasaljós í myrkri
Önnur hæð safnsins verður myrkvuð milli kl. 17 og 20 og fá gestir vasaljós til að komast leiðar sinnar og finna þá fjársjóði sem leynast í hillum safnsins.
Kl. 17, 17:30 og 18
Draugasögustundir
Sagðar verða draugasögur í barnadeildinni á 2. hæð
Kl. 18, 20 og 22
"Film noir" - klassískar rökkurmyndir í kamesinu á 5. hæð
Sýndar verða myndirnar Cape Fear, The Postman Always Rings Twice og The Maltese Falcon, en þær þykja gefa góða mynd af breidd þessa magnaða kvikmyndageira. Allar eru myndirnar byggðar á bókum sem komið hafa út á íslensku. Bækurnar og myndirnar eru allar til útláns á Borgarbókasafni. Boðið verður upp á "Café Noir" eða svart kaffi með myndunum (og jafnvel mjólkurdreitil út í).
Cape Fear kl. 18, The Postman Always Rings Twice kl. 20 og The Maltese Falcon kl. 22. Kynnið ykkur myndirnar!
Kl. 20.30
Ljóðaslamm - Myrkur!
Ungt fólk á aldrinum 15 - 25 ára stígur á svart svið og flytur frumsamda texta út frá viðfangsefninu MYRKUR. Skáldin flytja ljóðagjörningana í bland við tónlist, myndir, leikræna tjáningu, dans eða hvað annað sem andinn býður.
Kl. 21:30 - 22:00
Kammerpönk og kvikar myndir
Hljómsveitin Malneiroprenia leikur kammerpönk á píanó, bassa og selló undir gömlum þöglum kvikmyndum í andar myrkurs. Sveitina skipa Gunnar Theodór, Hallgrímur Jónas og Hallur Örn.
Kl. 22:00
Slammari ársins
Sigurvegari Ljóðaslamms 2012 endurflytur siguratriði ársins.
Laugardagur 11. febrúar
Kl. 15:00 The Maltese Falcon í kamesinu á fimmtu hæð
Sunnudagur 12. febrúar
Kl. 15:00 - 16:00
Hvernig verða draugar til?
Draugaföndur í umsjón Kristínar Arngrímsdóttur myndlistarmanns.
Til baka