Vefsíða Borgarbókasafns

Áhugavert á safninu

Stelpur, draumar og heimsendir


Guðríður og Ingvi Þór skrifa um nýjar bækur á safninu. Hér að neðan er síðan listi yfir nýtt efni sem hefur komið á safnið síðastliðnar tvær vikur.

Stelpurnar mínarStelpurnar mínar. Susanne Staun. Orðastaður 2010. Þýðandi Stefán Sigurðsson
Susanne Staun hefur skrifað 11 bækur og er hún þekkust fyrir bækur sínar um Dr. Fanny Fiske, sem er einmitt aðalpersóna þessarar bókar. Fanny Fiske, sem er atferlissálfræðingur, er manneskja sem fæstir vildu eiga að óvini, töffari inn að beini sem elskar svínakjöt og merkjavörur og hatar grænmetisætur. Í þessari bók leitar hún, ásamt réttarmeinafræðingnum Lisu Selander og saksóknaranum P.J. Harvey, uppi morðingja vinkonu sinnar, Ninu, sem var blaðakona, glæpasagnahöfundur og alræmdur pistlahöfundur.


VegurinnVegurinn. Cormac McCarthy. Bjartur, 2010. Þýðandi Rúnar Helgi Vignisson
Ef fólk hefur ekki þegar fengið nóg af kreppu og hörmungum er Vegurinn rétta lesningin. Sagan gerist eftir miklar náttúruhamfarir, sem hafa nær eytt öllu lífi á jörðinni, og segir frá för föður og sonar í gegnum hrjóstrugt og eyðilegt landslagið í átt til sjávar. Mannætur ráfa um með kjöttægjur á milli tannanna, allur gróður er horfinn, það er kalt, dimmt og eina von feðganna er að við sjóinn sé heitara og þar muni þeir finna „gott fólk“ eins og þá sjálfa. Bókin fékk Pulitzer verðlaunin árið 2007 og James Tait Black Memorial verðlaunin árið 2006. Kvikmynd var gerð eftir myndinni undir stjórn John Hillcoat en handrit skrifaði Joe Penhall.

Norma Vallys Bathroom Fix-UpsNorma Vallys Kitchen Fix-Ups  Norma Vally’s Bathroom Fix-Ups og Norma Vally's Kitchen Fix-Ups. Norma Vally. Wily Publishing, 2009.
Norma Vally er nokkuð skemmtileg týpa, fyrrum söngkona i rokkhljómsveit, módel og þáttagerðarmaður hjá útvarpi og sjónvarpi og núverandi altmúligkona (gengur undir nafninu “The Toolbelt Diva”) og bókahöfundur. Í þessum bókum sýnir hún á einfaldan og auðskilinn hvernig sinna má lítilsháttar og meiriháttar viðgerðum og breytingum á baðherbergjum og eldhúsum. Bókunum fylgja DVD diskar með leiðbeiningum. Á heimasíðu hennar má einnig fá ýmis ráð og ábendingar: http://www.normavally.com/

Andrea Hejlskov – en facebookbiografi
”Andrea Hejlskov” – en facebookbiografi. Andrea Hejlskov. Lindhardt og Ringhof,  2009
Nýlega kom í safnið bók sem kannski getur talist fyrsta fésbókar-skáldsagan. Alla vega segja Danir að svo sé. Nema að þetta sé ævisaga. Hætt er við því þar sem höfundur segir frá skilnaðarmálum sínum og hvernig hún kynnist nýjum manni og öll er bókin full af færslum frá fésbókarvinum ásamt myndum. Sem sagt samskipti á tímum samskiptavefsíðna. Líklega er þetta svona fésbókarbloggbók. Nokkru nær? Nei, ekki við heldur.


Úr skilvindu drauma
Úr skilvindu drauma. Arngrímur Vídalín. Nýhil, 2009.
Arngrímur Vídalín er einn af fjölhæfum starfsmönnum safnsins. Bókin hans er aldeilis stórskemmtileg og fær okkar bestu meðmæli og ekki eingöngu vegna þess að hann er samstarfsmaður okkar, heldur er hún í raun og veru frábær!

Orange bókmenntaverðlaunin
Þann 9. júní verður tilkynnt hver hlýtur Orange bókmenntaverðlaunin, en þau verðlaun eru einungis veitt kvenrithöfundum og eru að einhverju leyti fyrirmynd Fjöruverðlaunanna íslensku. Eftirtaldar bækur eru tilnefndar:

The Very Thought of You eftir Rosie Alison
The Lacuna eftir Barbara Kingsolver
Black Water Rising eftir Attica Locke
Wolf Hall eftir Hilary Mantel (sem fékk Booke- verðlaunin núna síðast)
A Gate at the Stairs eftir Lorrie Moore
The White Woman on the Green Bicycle eftir Monique Roffey

Þessar bækur eru á leiðinni til okkar en Wolf Hall er nú þegar til í öllum deildum Borgarbókasafns og The Lacuna er til í aðalsafni og Foldasafni.
A Gate at the Stairs Black Water Rising The Lacuna The Every Thought of You The White Woman on the Green Bicycle Wolf Hall


Viltu vita meira um Orange verðlaunin?


Hér er listi yfir nýtt efni sem hefur komð á safnið síðastliðnar tvær vikur:

HANDA BÖRNUM
Sögur á íslensku
Bína býfluga. Jeremy Child, 2009.
Björg bjalla. Jeremy Child, 2009 
Breki og Dreki í leikskóla. Aino Havukainen og Sami Toivonen , 2010 
Frikki froskur.Jeremy Child, 2009 
Litli prinsinn. Antoine de Saint-Exupéry, 2010
Sögur og leikir úr Latabæ,  2010.
 Stebbi skjaldbaka. Jeremy Child,  2009
Víst kann Lotta að hjóla.  Astrid Lindgren, 2010
Álfar og huldufólk : úr þjóðsögum Jóns Árnasonar. Myndir Florence Helga Thibault, 2009. 

Sögur á öðrum tungumálum
Ja, overalt kan du dra.  Dr. Seuss, endursögn: Nicolai Houm og Geir Nummedal,  2009

Ljóð
Segðu mér og segðu ... Aðalsteinn Ásbeg Sigurðsson ; Linda Ólafsdóttir myndskreytti, 2009

Léttlestrarbækur
Apabók.  Sigríður Ólafsdóttir, 2009
Bátabók. Sigríður Ólafsdóttir, 2009
Blómabók. Sigríður Ólafsdóttir, 2009
Froskabók . Sigríður Ólafsdóttir, 2009 
Kisubók. Sigríður Ólafsdóttir, 2009
Mánabók. Sigríður Ólafsdóttir, 2009 
Ormabók. Sigríður Ólafsdóttir, 2009
Sólarbók.  Sigríður Ólafsdóttir, 2009

Hljóðbækur
Hetjur. Kristín Steinsdóttir, höfundur les, 2010 
Prinsessan á Bessastöðum. Gerður Kristný, höfundur les, 2010 

Tónlist
Söngfuglarnir syngja 20 barnalög. Flytjendur Kristín Lilliendahl og Árni Blandon , 2010 

Kvikmyndir á DVD
Mjallhvít og dvergarnir sjö, 2009


HANDA FULLORÐNUM
Skáldsögur

Heimsljós. Halldór Laxness, 2010
Íslenskar gamansögur.  Guðjón Ingi Eiríksson, 2007 
Örvitinn eða hugsjónamaðurinn. Óttar Martin Norðfjörð. Teikningar Inga Birgisdóttir, 2010.

Ljóð
2009 : ljóð.  Þór Stefánsson. Teikningar eftir Sigurð Þóri, 2010 
Blandarabrandarar : (die Mixerwitze). Eirík Örn Norðdahl, 2005 
Gamall þrjótur, nýir tímar . Örvar Þóreyjarson Smárason, 2005
Gleði & glötun. Óttar M. Norðfjörð, 2005
Ljóðaúrval. Jóhannes úr Kötlum, 2010 
Og svo kom nóttin.Þórdís Björnsdóttir. Teikningar Jesse Ball, 2006 
Rispa jeppa. Haukur Már Helgason, 2005
Sálmurinn um glimmer. Auður Ava Ólafsdóttir, 2010
Trumbur og strengir : ljóð frönskumælandi skálda frá Afríku .  Þór Stefánsson valdi og þý ddi, 2009

Skáldverk á öðrum tungumálum
About face. Donna Leon, 2010 
Destination unknown . Agatha Christie, 2003 
Endless night. Agatha Christie, 2007
The left hand of God.  Paul Hoffman, 2010
 Ordeal by innocence. Agatha Christie, 2003 

Allt annað en skáldskapur
Allra besta gjöfin.  Jim Stovall ; Guðrún G. Bergmann íslenskaði, 2010 
Áhrif skattahækkana á hagvöxt og lífskjör. Hannes Hólmsteinn Gissurarson, 2009
Bútasaumsteppi. Trine Bakke, 2009
Ekki lita út fyrir : sjálfshjálparbók handa sjálfri mér og öðrum ýlandi dræsum . Eva Hauksdóttir, 2010
Hofstaðir : excavations of viking age feasting hall in north-eastern Iceland. Gavin Lucas, 2009
 Knit one below : one stitch, many fabrics. Elise Duvekot, 2009
Lev dig lykkelig : med positiv psykologi. Sara Zobel Kølpin, 2008 
Ljóslitlífun = Coloursynthesis. Sýningarstjórn og ritstjórn = curator and editor Hafþór Yngvason,  2010
Manifesto for the earth : action now for peace, global justice and a sustainable future. Mikhail Gorbatsjov, 2006
Möguleikar : Listasjóður Guðmundu Kristinsdóttur, 2009
Norsk! : multikultur på sitt beste.  Mariann Youmans, ljósmyndir Merete Haseth, 2009
 Package design, 2008 
Quantum psychology : how brain software programs you and your world. Robert Anton Wilson, 2009 
Réttir úr ríki Vatnajökuls : uppskriftir með hornfirskt hráefni í aðalhlutverki. Halldór Halldórsson, 2009
Saga félags járniðnaðarmanna 1920-2006 .  Friðrik G. Olgeirsson, 2010
 Stones into schools : promoting peace with books, not bombs, in Afghanistan and Pakistan / Greg Mort, 2009
Umhverfismál í innkaupavagninum. Hafdís Anna Bragadóttir, Lára Jóhannsdóttir og Stefán Gíslason, 2010

Ævisögur
Læknir í blíðu og stríðu : æviminningar Páls Gíslasonar yfirlæknis og skátahöfðingja. Hávar Sigurjónsson,  2010

Hljóðbækur
Fólk í sögunni. Lesarar: Margrét Ingólfsdóttir, Valý Þórsteinsdóttir, Páll Guðbrandsson og Ingólfur B. Kristjánsson, 2009
Grímseyjarlýsing . Jón Norðmann.Lesari Ingólfur B. Kristjánsson, 2009

Tónlist á CD
Horizons : a personal collection of piano encores. Leif Ove Andsnes piano, 2006 
Peace is just a word. Eurythmics, 2000 
Piano concertos,  6 lyric pieces.  Grieg ; Liszt, 2007
Ern er vor: söng- og danslög. Ernst Fridolf Backman , 2009 
Eurovision song contest, Oslo: öll lögin úr keppninni, 2010 
Everybody knows it's gonna happen only not tonight . The Go Find, 2010
Gauragangur: tónlist úr sýningu Þjóðleikhússins. tónlist Ný dönsk.
 Good people of mine. Johnny Stronghands,  2010 
I see the sign. Sam Amidon, 2010 
M-blues project. Flytjandi Matti sax, 2009 
M-project. Matti sax, 2007 
Pottþétt 52 [hljóðrit] : 38 pottþétt lög, 2010 
Set me on fire. Biggibix, 2010
Skúli mennski & hljómsveitin Grjót, 2010 
Skyssur. Kristinn Kristinsson
Tímabil. Í svörtum fötum, 2010

Kvikmyndir á DVD
Antichrist. Leikstjórn og handrit: Lars von Trier, 2010
The damned united. leikstjóri Tom Hooper, 2010 
Diary of the dead . Leikstjórn og handrit: George A. Romero, 2009 
The Duchess. Leikstjórn: Saul Dibb, 2010 
Funny people. Leikstjóri og handrit Judd Apatow, 2010 
The informant! Leikstjóri: Steven Soderbergh, 2010 
Saving god. Leikstjórn Duane Crichton, 2010
Orphan. Leikstjóri Jaume Collet-Serra,  2010
Perfume : the story of a murderer. Leikstjóri Tom Tykwer, 2007 

Er eitthvað af þessu inni á söfnunum? Athugaðu í Gegni!

Finnst þér eitthvað vanta á safnið? Sendu okkur innkaupatillögu!


Til baka



Senda Senda Prenta Prenta Senda á Facebook


Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�