Vefsíða Borgarbókasafns

Áhugavert á safninu

Ljóð, garðar, skór og fleira


Eins og venjulega hrúgast inn skemmtilegar og fræðandi bækur á bókasafnið. Hér verður aðeins fjallað um brot af þeim.

Svanurinn minn syngurSvanurinn minn syngur. Ljóð og líf skáldkonunnar Höllu Eyjólfsdóttur. Guðfinna M. Hreiðarsdóttir, 2008, Ísafirði.
Í þessari bók er birt úrval kvæða vestfirsku skáldkonunnar Höllu Eyjólfsdóttur (1866-1937) frá Laugabóli í Ísafirði. Halla var bóndakona og stóð hugur hennar til náms og mennta. Hún hafði ekki kost á því en fann svölun og frelsi í skáldskapnum. Eftir hana liggja tvær ljóðabækur, Ljóðmæli sem kom út árið 1919 og Kvæði frá árinu 1940. Guðfinna M. Hreiðarsdóttir sagnfræðingur valdi ljóðin í bókina og tók saman æviágrip skáldkonunnar. Í bókinni er einnig birtur skemmtilegur ritdómur Matthíasar Jochumsonar um fyrri bók Höllu þar sem hann segir m.a. að hún kveði „alþýðuljóðmæli fyrir alþýðu, þótt hún bjóði líka hærri tóna.“ Halla er án efa þekktust fyrir ljóðin Svanurinn minn syngur og Ég lít í anda liðna tíð en bæði eru við lög eftir tónskáldið Sigvalda Kaldalóns. Einkar falleg bók að innihaldi og útliti.


Ljóðveldið ÍslandLjóðveldið Ísland. 65 ár í 66 erindum við þig. Sindri Freysson. Svarta forlag, 2009.
Hér er Íslandssagan rakin frá árinu 1944 til ársins 2009 í 66 erindum eins og undirtitillinn segir til um, ásamt nokkrum vel völdum ljósmyndum. Bókin byrjar á tilvitnun í Aðgerðaráætlun Viðskiptaráðs frá 2006 til ársins 2015 sem og í ummæli Björgólfs Thors frá 2005. Hvoru tveggja hljómar eins og lélegur brandari þegar litið er til ástandsins í dag. Þessar tilvitnanir gefa vissulega tóninn fyrir ljóðin eða erindin sem á eftir koma og er ekki laust við að hæðnin svífi þar yfir vötnum. Bókarkápan er viðeigandi, og hæðnin ekki langt undan þar frekar en í textanum. Hana prýðir innsigli með íslenska skjaldarmerkinu og er það e.t.v. táknrænt fyrir ástandið og innihald bókarinnar að það brotnaði í þrennt þegar ég fletti bókinni.


Garden Design
Garden Design. TeNeues 2008
Hér eru engir kartöflugarðar á ferð heldur alvöru garðar hannaðir af landslagsarkitektum og sprenglærðum garðahönnuðum. Í bókinni eru 300 litmyndir og einhverjir uppdrættir af flottum, vel hönnuðum og skipulögðum görðum, almennings- og einkagörðum víðsvegar um heiminn, jafnt á jörðu niðri sem á toppi háhýsa. Í umfjöllun um hvern garð er vísað á heimasíðu þar sem hægt er að kynna sér garðinn og hönnun hans betur. Tilvalin bók fyrir þá sem eru svo heppnir að eiga garð og vantar hugmyndir að einhverju smörtu.

ShoesShoes. Judith Miller. Miller’s 2008.
Hér er meiri hönnun á ferð, nú eru það skór frá lokum 19. aldar og fram á okkar daga. Hér er fjallað um sérstök tímabil og svo skótísku og skóhönnuði innan hvers tímabils, birtar myndir af velvöldum skóm og hvert par svo verðlagt. Það er greinilegt að mikið hefur verið og er búið til af fallegum skóm og ekki síður forljótum. Vel að merkja eru þetta allt kvenmannsskór. Bók fyrir skóunnendur.



Mátturinn í núinu


Mátturinn í núinu. Vegvísir til andlegs þroska.
Eckhart Tolle. Bókaútgáfan Bifröst, 2009.
Nú hefur þessi vinsæla bók verið endurútgefin. Eins og titill hennar gefur til kynna er lögð áhersla á að lifa í núinu, sleppa tökunum af fortíðinni og gera sér ekki rellu út af framtíðinni. Bókina eða „kenningar“ sínar byggir höfundurinn á samtölum við einstaklinga og fámenna hópa í Norður-Ameríku og Evrópu. Hún er þannig sett upp að hver kafli byrjar á spurningu sem síðan er svarað af höfundinum með viðeigandi dæmisögum og útskýringum. Þetta er andleg leiðsögn og á bókin svo sannarlega við núna... og alltaf.

Digidigidigital
The New Digital Video Manual og The Complet Digital Photography Manual eru fínar handbækur fyrir áhugamenn um videótökur og ljósmyndun og... fyrir þá sem nenna að lesa manuala :o). Annars eru þetta aðgengilegar og þægilegar bækur þar sem undirstöðuatriði og önnur flóknari eru rækilega kynnt. Ljósmyndun er greinilega erfiðari en vídeótökur, alla vega ef þykkt bókanna er notuð sem viðmið.

The Complete Digital Photography The New Digital Video Manual











Teach Yourself Visually
Og hér eru svo aðrar fyrir þá sem hafa enga þolinmæði í manuala: Teach Yourself Visually bækurnar. Þær leggja áherslu á margar myndir og lítinn texta... aldeilis frábært. Þær nýjustu á safninu eru: Teach Yourself Visually Adobe Photoshop CS3, Teach Yourself Visually Laptops, Teach Yourself Visually Macs, Teach Yourself Visually Office 2007, Teach Yourself Visually Handspinning og loks Teach Yourself Visually Knitting Design.

 
Teach Yourself Visually Laptops Teach Yourself Visually Macs Teach Yourself Visually Office 2007 Teach Yourself Visually Adobe Photoshop CS3Teach Yourself Visually HandspinningTeach Yourself Visually Knitting Design


Til baka



Senda Senda Prenta Prenta Senda á Facebook


Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�