Vefsíða Borgarbókasafns

Áhugavert á safninu

Sumarlestur


Sumarið er góður tími til að lesa og á bókasafninu er alltaf hægt að ganga að nýjum og spennandi bókum.


Svo fagurgrænar og frjósamar
Svo fagurgrænar og frjósamar. Smásögur frá Kúbu, Púerto Ríkó og Dóminíska lýðveldinu.
Ritstjórar Erla Erlendsdóttir og Kristín G. Jónsdóttir.
Í þessari bók eru 30 smásögur frá þremur eyríkjum í Karíbahafi, Kúbu, Púertó Ríkó og Dóminíska lýðveldinu. Sögurnar spanna alla tuttugustu öldina og ættu unnendur spænskrar tungu að þekkja marga rithöfunda á meðal þeirra sem eiga sögu í safninu. Í byrjun bókarinnar eru tæpt á sögu og aðstæðum ríkjanna þriggja ásamt ítarlegri umfjöllun um þróun smásögunnar í þeim. Metnaðarfull og vönduð bók!

Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!

Óður til steinsins
Óður til steinsins. Sögur íslenskra kvenna.
Aldís B. Björnsdóttir.
Í bókinni Óður til steinsins eru frásagnir úr lífi átján íslenskra samtímakvenna. Konurnar skrifa ekki undir nafni og eru frásagnir þeirra einlægar og opinskáar og segja frá lífsreynslu þeirra, örlagaríkum atburðum sem hafa mótað þær og tilfinningum sem þær hafa upplifað.


Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!




Síðasti fyrirlesturinn
Síðasti fyrirlesturinn.
Randy Pausch.
„Ég á við tækinlegt vandamál að stríða. Ég er í fínu formi, að því undanskildu að ég er með tíu æxli í lifrinni og á bara eftir að lifa örfáa mánuði.“ Þannig hefst Síðasti fyrirlesturinn en í honum segir Randy Pausch, prófessor í tölvunarfræðum við Carnegie Mellon háskóla, frá lifi sínu eftir að hafa fengið þær fréttir að hann sé með ólæknandi krabbamein. Í stað þess að beina sjónum að endalokunum fer hann yfir lífsferil sinn og mikilvægi þess að láta drauma sína rætast.


Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!

Consuming Kids
Consuming Kids
. Susan Linn.
Frá vöggu til neytanda... , þetta er svona bók sem maður fær hroll af að lesa, hún birtir óhugnanlegar staðreyndir um mátt auglýsinga og alla þá peninga sem er eytt í að sannfæra börn um mikilvægi þess að borða „rétta“ morgunkornið eða skyndibitann, eiga „réttu“ leikföngin, klæðast „réttu“ fötunum o.s.frv. Að meðaltali sjá amerísk börn um 40.000 sjónvarpsauglýsingar á ári, (e.t.v. heldur meira en íslensk börn) og ein afleiðingin er sú að um leið og þau læra að tala eru þau farin að biðja um ákveðið merki eða ákveðna vöru. Foreldrar ættu að lesa þessa bók í það minnsta einu sinni ári og geta þeir þá hugsanlega barist gegn mátti auglýsinganna og hunsað nöldur litlu englanna.


Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!


You get so alone at times that it just makes sense
You get so alone at times that it just makes sense.
Charles Bukowski.
Þetta er safn fjölda ljóða (bókin er upp á 315 síður) eftir Bukowski en hún kom fyrst úr árið 1986. Bukowski er samur við sig í ljóðum sínum, kaldhæðinn, ruddalegur, hrár, óvæginn, óðamála, einmana, fullur og ekki laust við að örli á nostalgíu inni á milli. Ef fólk kann á annað borð við Bukowski verður það ekki svikið af þessari bók.

Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!


Nýjar spennusögur í sumarleyfið
Spennusögur njóta mikilla vinsælda og eru eftirsóttar í sumarbústaðinn, tjaldið og á ströndina. Nokkrar nýjar hafa komið út að undanförnu:

Þar sem sólin skín
Þar sem sólin skín.
Liza Marklund
Hér er hin alvarlega sænska blaðakona á Kvöldblaðinu, Annika Bengtzon, fjarri sínum realísku heimaslóðum þar sem er hún send til Malaga til að fylgjast með rannsókn á morði á sænskri fjölskyldu. Það sem í fyrstu leit út fyrir að vera „einfalt morð“ reynist vera mun flóknara mál og margslungnara og flækist Annika inn í æsispennandi atburðarás þar sem koma við sögu eiturlyf, peningaþvætti og hefnd sem á rætur að rekja til löngu liðinna atvika. Annika klikkar ekki.

Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!

Rauðbrystingur
Rauðbrystingur.
Jo Nesbø
Harry Hole (sem er fyndið og skemmtilega klisjukennt nafn á rannsóknarlögreglumanni en ekki beinlínis norskt) fæst hér við mál sem teygir anga sína aftur til heimstyrjaldarinnar síðari. Norskir sjálfboðaliðar á austurvígstöðvunum, rándýr þýskur veiðirifill, morð á lögreglukonu, nýnasistar, spilltir embættismenn, Osló og aðlaðandi kona. Maður biður ekki um meira.
Rauðbrystingur er fyrsta bókin um norska rannsóknarlögreglumanninn Harry Hole sem þýdd er á íslensku og vonandi ekki sú síðasta.

Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!

ÓheillakrákanÓheillakrákan. Camilla Läckberg
Hér er komin fjórða bókin um Eriku og Patrik, en þau eru þekkt fyrir að leysa sakamálin á ótrúlega heimilislegan hátt. Lítið hefur verið um að vera í Tanumshede þegar umdeildur raunveruleikasjónvarpsþáttur, Fucking Tanum, er tekinn upp í bænum. Banaslys í umferðinni í Fjällbacka markar upphafið að óvenju flókinni morðrannsókn og þegar Patrik uppgötvar að fleiri dauðsföll megi hugsanlega tengja morðinu þýðir það að morðinginn muni hafa margt á samviskunni. Þegar lík eins þátttakandans í sjónvarpsþættinum umdeilda finnst nakið í öskutunnu vakna spurningar um hvort þessi óhugnanlegu mál tengist.

Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!

Guðríður Sigurbjörnsdóttir, gudridur.sigurbjornsdottir@reykjavik.is


Til baka



Senda Senda Prenta Prenta Senda á Facebook


Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�