Áhugavert á safninu
Kvikmyndir og tónlist
Kvikmyndir
Nýverið hafa bæst nokkur klassísk kvikmyndaverk í hillur Borgarbókasafns. Meðal þeirra eru tvær af tímamótamyndum kvikmyndasögunnar, önnur bandarísk en hin sovésk. Sú bandaríska er sögð út frá sjónarhorni tveggja fjölskyldna, sú sovéska frá sjónarhóli fjöldans og virðast þær í fyrstu eiga fátt eitt sameiginlegt utan að vera teknar í svart hvítu, vera ótalsettar og með undirspili. Þegar betur er að gáð kemur þó ýmislegt sameiginlegt í ljós.
Báðar gerast þær á tímum upplausnar og borgarastyrjalda, báðar voru þær ritskoðaðar og tilklipptar á sínum tíma, sú sovéska að mestu fyrir frumsýningu, hin að henni lokinni og báðar hafa þær fram til þessa dags verið umdeildar og ásakaðar fyrir einfalda söguskoðun og áróður - sú bandaríska einkum fyrir kynþáttaáróður en hin sovéska fyrir pólitískan.
Myndirnar eru The Birth of a Nation frá 1915, gerð af D.W. Griffith þar sem sögusviðið er bandaríska borgarastyrjöldin og árin þar á eftir og Október, gerð 1927-1928 af Sergei Eisenstein, í tilefni 10 ára afmælis Októberbyltingarinnar 1917. Nú eru Sovétríkin liðin undir lok og blökkumaður á leið inn í Hvíta húsið og vissulega eru þessar myndir börn síns tíma, jafnvel svo að sumum kann að þykja óþægilegt á að horfa. Báðar eru þær þó hylltar sem frábær epísk kvikmyndaverk, stútfullar af tímamótalausnum og tæknilegum nýjungum í kvikmyndagerð, gerðar af bestu leikstjórum síns tíma á hátindi ferils síns. Hvort þrengingar þær og þjóðfélagssviptingar sem við Íslendingar göngum nú í gegnum eigi síðar eftir að verða innblástur stórkostlegra kvikmyndaverka á eftir að koma í ljós. Á meðan við bíðum er ekki úr vegi að bregða sér í safnið og njóta verka tveggja horfinna meistara sem tókust á við sögu þjóða sinna þó með umdeildum hætti væri. Aðrar helstu myndir þeirra er einnig að finna í hillum safnsins - svo fremi þær séu ekki í útláni!
Eru myndirnar inni? Leitaðu í Gegni!
Tónlist
Ýmsum finnst notalegt á þessum síðustu og verstu að hlusta á slökunartónlist og diska með alls kyns náttúruhljóðum ætluðum til afslöppunar. Þetta höfum við í Borgarbókasafni orðið vör við og eru til all nokkrir slíkir diskar í safninu. Hingað til höfum við þó ekki gengið það langt að gefa þessu ágæta efni sérstakan röðunarbókstaf en nú höfum við ákveðið að nota hinn auðþekkta bókstaf Z til auðkennis á þessu efni. Hann er enda hefðbundið tákn svefns og rólegheita auk þess að vera á mörkum tveggja stafsetningarheima líkt og við sveiflumst gjarnan milli tveggja heima við hlustun slökunartónlistar.
Á næstunni ætti því að vera hægt að bregða sér á safnið og ganga á einum stað að diskum með nöfnum eins og Total relaxation release stress and tension / Meditation music for harmony & balance. / Soothing sounds for babies svo ekki sé nú minnst á hinn sívinsæla The sound of tropical rain forest: ambient music with sounds of nature.
Svo er bara að fara heim (harðbannað að spila þetta undir stýri) loka augunum, ferðast milli svefns og vöku, slappa af, yfirgefa stressið um stund, opna svo augun og vakna endurnærð og tilbúin að takast á við þann veruleika sem við okkur blasir í vökuheimi.
Eru diskarnir inni? Leitaðu í Gegni!
Til baka