Borgarbókasafn leggur metnað sinn í að bjóða upp á fjölbreyttan safnkost sem höfðar til og nýtist börnum, ungu fólki og fullorðnum. Safnið leggur áherslu á að kaupa inn íslenskt efni, skáld- og fræðirit, tónlist, kvikmyndir og fræðimyndir en einnig að fylgjast með og kaupa inn áhugavert efni sem gefið er út erlendis.
Í öllum deildum safnsins er hægt að setjast niður og fletta dagblöðum og nýjum tímaritum. Þar eru líka til afnota alfræðibækur, orðabækur og önnur uppsláttarrit
Er bókin/diskurinn/myndin inni? Leitaðu á leitir.is! Leitir.is er bókasafnskerfi sem hýsir samskrá íslenskra bókasafna.
Finnst þér eitthvað vanta á safnið? Sendu okkur innkaupatillögu að efni (bók, tímariti, tónlist, myndefni eða einhverju öðru).